Fara í aðalefni

Sveitarfélög

Hruna­manna­hrepp­ur er sveit­ar­fé­lag árs­ins 2026

19. október 2026

Fimmtudaginn 15 október fór fram viðburðurinn Sveitarfélag ársins 2026 en þar voru kynntar niðurstöður úr árlegri könnun Gallup um starfsánægju í sveitarfélögum landsins.

Fulltrúar sunnlensku sveitarfélaganna en fulltrúi Grundafjarðarbæjar komst ekki við athöfnina.

Sveitarfélag ársins er árleg viðurkenning sem byggir á starfsánægju og starfsumhverfi starfsfólks sveitarfélaga. Gallup framkvæmir könnunina og Mannauðssjóðurinn Hekla kemur líka að verkefninu.

Ýmis atriði eru skoðuð eins og stjórnun sveitarfélagsins, samskipti og andrúmsloft á vinnustaðnum, aðstæður og aðbúnaður starfsmanna, hvernig starfsfólki líður í starfi og hvernig það metur kjör sín.

Þau sveitarfélög sem hlutu efstu sæti í könnunni fá afhenta viðurkenningu. Þau eru:

1. Hrunamannahreppur

2. Grímsnes- og Grafningshreppur

3. Grundafjarðarbær

4. Skeiða- og Gnúpverjahreppur

Sveitarfélögum er boðið að taka þátt í könnuninni fyrir hönd síns starfsfólks og hefur þátttaka aukist ár frá ári. Könnunin er ein af stærri vinnumarkaðskönnunum sem framkvæmd er hér á landi.