Fjármál
Fjárlagafrumvarp 2027: Verkefnum verður að fylgja fjármagn
15. október 2026
Fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga fóru í vikunni á fund fjárlaganefndar Alþingis og gerðu grein fyrir umsögn Sambandsins um frumvarp til fjárlaga ársins 2027. Í umsögninni er lögð áhersla á mikilvægi þess að ríki og sveitarfélög vinni saman í þágu efnahagslegs stöðugleika, en jafnframt að ábyrgð og fjármögnun verkefna fari saman.

Í umsögninni tekur Sambandið undir markmið stjórnvalda um að ná jafnvægi í ríkisfjármálum og draga úr verðbólgu og telur nauðsynlegt að ríkisvaldið og stofnanir í eigu þess fari að fordæmi sveitarfélaga og takmarki hækkanir gjaldskráa við 2,5%. Að ná niður þrálátri verðbólgu krefst samstillts átaks og forgangsröðunar en ávinningur af lækkun verðbólgu og vaxta er gríðarmikill.
Tryggja þarf virkt samráð og kostnaðargreiningu verkefna
Í anda ályktunar landsþings Sambandsins kemur jafnframt fram að mikilvægt sé að bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga. Sveitarfélögin eiga ekki að vera síðasti hlekkurinn í keðjunni þegar ríkisvaldið tekur stefnumarkandi ákvarðanir, setur ný lög eða reglugerðir án fullnægjandi kostnaðarmats, heldur þarf að tryggja virkt samstarf og fulla fjármögnun verkefna frá upphafi.
Sveitarfélögum hafi um langt skeið verið falin ný verkefni og auknar skyldur án þess að fullnægjandi fjármögnun fylgi. Tryggja þurfi virkt samráð við sveitarstjórnarstigið og skýra kostnaðargreiningu áður en ný verkefni eru lögð á sveitarfélög.
Í umsögninni er bent á að fjármögnunarvandi málaflokks fatlaðs fólks sé enn óleystur og kallar Sambandið eftir heildstæðri endurskoðun á fjármögnun þjónustunnar. Uppsafnaður rekstrarhalli á málflokknum er orðinn 100 milljarðar króna frá 2018.
Þá er lögð áhersla á að samkomulag ríkis og sveitarfélaga um ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda verði að fullu fjármagnað og að ríkið standi við þær skuldbindingar sem felast í samkomulagi sem gert var 19. mars 2025.
Ljóst má vera að innleiðing farsældarlaganna er enn ekki lokið þrátt fyrir að fyrirhugað sé að fella niður sérstök framlög tengd verkefninu. Sambandið telur brýnt að stjórnvöld eigi samtal við sveitarfélög um framtíð fjármögnunar þjónustunnar eins og áskilið í lögum um farsæld, áður en slíkar breytingar taka gildi.
Sambandið telur lækkun framlaga til sóknaráætlana landshluta og atvinnuráðgjafa á landsbyggðinni óskynsamlega því framlögin eru mikilvæg fyrir byggðaþróun og atvinnusköpun um land allt.
Að lokum bendir Sambandið á að kostnaður sveitarfélaga vegna þjónustu við flóttafólk hafi aukist verulega á undanförnum árum. Sveitarfélög sem tóku virkan þátt í móttöku hafa orðið fyrir miklum kostnaðarauka vegna fjárhagsaðstoðar við flóttafólk. Tryggja þarf sanngjarna aðkomu ríkisins að stuðningi við flóttafólk með engin eða takmörkuð ellilífeyrisréttindi og styðja þarf miklu betur við atvinnuþátttöku flóttafólks á vinnufærum aldri.