Fara í aðalefni

Landsþing

Sveit­ar­fé­lög sýna ábyrgð gagn­vart verð­bólgu

25. september 2026

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti í dag ályktun Almars Guðmundssonar, bæjarstjóra í Garðabæ og formanni Sambandsins, um að sveitarfélög sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagasmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna.

Menningarhúsið Hof á Akureyri.
Menningarhúsið Hof á Akureyri.

Í ályktuninni kemur eftirfarandi fram:

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga ályktar um að sveitarfélögin sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna. Þingið lýsir yfir vilja sínum til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027. Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi og ríkisvaldið og stofnanir í eigu þess taki þátt í sameiginlegu átaki og takmarki með sambærilegum hætti hækkanir á gjaldskrám og álögum sem hafa bein áhrif á heimilin. Með því leggja allir sitt af mörkum við að skapa sátt í samfélaginu. ​

Með samþykkt ályktunarinnar lýsa sveitarfélög landsins yfir vilja til að leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn verðbólgu og stuðla að auknum stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Landsþingið telur að núverandi aðstæður kalli á sameiginlega ábyrgð allra helstu aðila samfélagsins og samstillt viðbrögð til að ná tökum á verðbólgu og háum vöxtum.

Traust í samskiptum ríkis og sveitarfélaga

Í ályktuninni er einnig fjallað um samskipti ríkis og sveitarfélaga:

Mikilvægi er að það ríki traust og gagnkvæmur skilningur í samskiptum ríkis og sveitarfélaga. Í langan tíma hefur á þetta skort og gildir þá einu hvaða flokkar sitja í ríkisstjórn hverju sinni. Sveitarfélögum er ítrekað gert að taka á sig nýjar skyldur og bera aukinn kostnað vegna breyttrar löggjafar og stefnumörkunar ríkisins án þess að fullnægjandi fjármögnun fylgi. Sveitarfélög sitja uppi með fjárhagslegar skuldbindingar sem þau hafa takmarkaða möguleika á að mæta og dæmi eru um að ekki sé staðið við einstaka samninga.

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga gerir þá kröfu til Alþingis og ríkisstjórnar að breytingar verði á áralöngum samskiptavanda ríkis og sveitarfélaga. Sveitarfélögin eiga ekki að vera síðasti hlekkurinn í keðjunni þegar ríkisvaldið tekur stefnumarkandi ákvarðanir, setur ný lög eða reglugerðir án fullnægjandi kostnaðarmats, heldur þarf að tryggja virkt samstarf og fulla fjármögnun verkefna frá upphafi.