Fara í aðalefni

Félagsþjónusta

Við­mið um sjálf­bæra þró­un sveit­ar­fé­laga í sam­ráðs­gátt

12. október 2026

Innviðaráðuneytið hefur birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda tillögu að viðmiðum um sjálfbæra þróun sveitarfélaga. Tillagan byggir á vinnu starfshóps sem skipaður var fulltrúum ráðuneyta og Sambands íslenskra sveitarfélaga en Sambandið átti þrjá fulltrúa í hópnum.

Í tillögunni eru lagðir fram 30 mælikvarðar og viðmið sem ætlað er að styðja við mat á efnahagslegri, félagslegri og umhverfislegri sjálfbærni sveitarfélaga. Jafnframt hefur verið útbúið mælaborð fyrir sveitarfélögin þar sem fulltrúar þeirra geta sett inn upplýsingar og séð hvar sitt sveitarfélag stendur út frá framangreindum viðmiðum um sjálbæra þróun. Vonir standa til að mælaborðið geti nýst sveitarfélögum við greiningu, stefnumótun og ákvarðanatöku.

Sambandið hvetur sveitarfélög til að kynna sér viðmiðin vel og senda inn athugasemdir, ábendingar og umsagnir í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 13. nóvember nk.

Tillöguna er að finna í Samráðsgátt.