Fara í aðalefni

Íslenskum sveitarfélögum stendur til boða að sækja um styrk í svokallað European City Facility verkefni sem fjármagnað er af LIFE áætlun ESB. Styrkirnir eru veittir til sveitarfélaga sem vilja þróa fjárfestingaáætlun í þágu orkuskipta og aukinnar orkunýtni. Upphæð styrkja er 60.000 Evra (8,1 M ISK. á gengi dagsins 1.10.2026) auk þess sem styrkþegar fá þjálfun og stuðning frá sérfræðingum við að útbúa fjárfestingaáætlanir vegna orkuskiptaverkefna.

Styrknum er ætlað að nýtast við gerð fjárfestingaáætlunar á sviði orkuskipta, orkunýtni og loftslagsmála sem er sérsniðin að þörfum hvers umsækjenda. Fjárfestingaráætlunina má vinna á íslensku. Hægt er að nýta styrkinn t.d. vegna launakostnaðar starfsfólks og kaupa á greiningum. Fyrri styrkþegar hafa nýtt fjármagnið til fjölbreyttra aðgerða, meðal annars við gerð hagkvæmniathugana, markaðsrannsókna, hagaðilagreininga og mótun aðgerða til að auka samstarf við hagaðila, greiningar á lagaumhverfi, efnahagslegu umhverfi og fjármálum. Verkefnin sem unnar eru fjárfestingaáætlanir vegna ná yfir fjölbreytt svið, meðal annars endurbætur á byggingum, hitaveitukerfi, endurnýjanlega orku, snjallraforkunet og sjálfbærar samgöngur. Styrkþegum stendur einnig til boða þjálfun, tækifæri til tengslamyndunar og aðgangur að ýmsum verkfærum sem er sérstaklega ætlað að auðvelda fjármögnun verkefnis, hvort sem er frá opinberum aðilum eða einkageiranum.

Verkefnið hefur staðið yfir frá árinu 2019 og auglýst hefur verið eftir umsóknum 7 sinnum og hafa 400 sveitarfélög víðsvegar um Evrópu hlotið styrki til gerðar fjárfestingaáætlana vegna fjárfestinga í sjálfbærum orkulausnum. 330 þessara sveitarfélaga hafa nýtt þessar fjárfestingaáætlanir og hafa þær tryggt a.m.k. 170 milljörðum kr. í fjárfestingum en þar sem sum verkefnanna eru enn í undirbúningi er búist við að sú upphæð muni aðeins hækka. Auk fjárfestinganna eru umhverfisáhrif þessara verkefna gríðarleg en árlegur orkusparnaður er áætlaður meira en 15.000 GWst, framleiðsla endurnýjanlegrar orku eykst árlega um tæplega 12.000 GWh og mögulegur samdráttur í losun er um 11 milljónir tonna af CO₂-ígildum á ári. Íslenskum sveitarfélögum hefur staðið til boða að taka þátt síðan 2024 og fengu þrjú íslensk sveitarfélög styrki á árunum 2024-2025.

Nýtt styrkjatímabil

Hafið er nýtt styrkjatímabil og meðan á því stendur verður auglýst þrisvar eftir umsóknum. Fyrst verður opnað fyrir umsóknir þann 26. október 2026, næst í mars 2027 og að lokum í október 2027.

Umsóknarferlið er einfalt og fá skilyrði sem umsækjendur þurfa að uppfylla. Sveitarfélög geta sótt um stök eða nokkur í samstarfi (en styrkurinn er þó ætíð sá sami og deilist þá á milli þeirra sem sækja um saman). Sveitarfélag sem sækir um þarf að vera með gilda loftslagsstefnu þar sem koma fram mælanleg markmið um minnkun losunar eða aðgerðaáætlun um hitun eða kælingu húsakosts. Auk þess er farið fram á að hægt sé að sýna fram á pólitískan stuðning við verkefnið. Í umsókn þarf að gera grein fyrir áætluðu umfangi fjárfestinganna, áætluðum áhrifum á orkunýtni og áætlun um stjórnskipulag verkefnis og hvernig verði hvatt til þátttöku hagaðila.

 

Landstengiliður á Íslandi:  Gyða Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Netfang: gydae(hjá)samband.is