Fræðslumál
Ráðhúsfræðslan - rafræn hádegisfræðsla
12. mars 2026
Mánudaginn 23. mars kl. 12:00 verður haldin rafræn hádegisfræðsla undir yfirskriftinni Ráðhúsfræðslan.

Að þessu sinni verður fjallað um Mannauðstorg Sambands íslenskra sveitarfélaga og hvernig starfsfólk sveitarfélaga getur nýtt sér upplýsingarnar og efnið sem þar er að finna í daglegum störfum. Mannauðstorgið má skoða hér.
Námskeiðið fer fram á rafrænu formi og þurfa þátttakendur að skrá sig fyrir fram. Hlekkur á fundinn verður sendur skráðum þátttakendum að morgni fundardags.
Þátttakendum verður einnig boðið að senda inn spurningar á meðan fræðslunni stendur.
Við hvetjum áhugasamt starfsfólk sveitarfélaga til að skrá sig og taka þátt.