Fara í aðalefni

Fræðslumál

Hvern­ig er hægt að skapa heil­brigða vinnu­staða­menn­ingu?

5. mars 2026

Málþing um hvernig hægt sé að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu í skólum verður haldið í Háteig á Grand hoteli fimmtudaginn 12. mars næstkomandi.

Málþingið er haldið í framhaldi af samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga um vinnustaðamenningu í leik- og grunnskólum 2023-2025. Kannanir sem framkvæmdar hafa verið á undanförnum misserum hafa gefið til kynna að starfsfólk í leik- og grunnskólum upplifir meira andlegt áreiti en starfsfólk í mörgum öðrum starfsgreinum, sem undirstrikar mikilvægi þess að hlúa þurfi sérstaklega að vellíðan þess og vinnuumhverfi.

Niðurstöður samstarfsverkefnis sýna að markvissar aðgerðir geta bætt vinnustaðamenningu og líðan starfsfólks. Tilgangur málþingsins er að miðla þeim lærdómi sem af verkefninu hlaust og gefa fleiri vinnustöðum tækifæri á að nýta hann.

Málþingið hefst klukkan 12.30 og stendur til 16:00.

Fundarstjóri verður: Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara.

Málþingið er öllum opið. Hægt verður að mæta á staðinn eða flylgjast með í streymi en nauðsynlegt er skrá þátttöku. Skráning fer fram hér.