Kjaramál
Rakel Guðmundsdóttir ráðin varaformaður samninganefndar Sambandsins
16. apríl 2026
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur ráðið Rakel Guðmundsdóttur í starf varaformanns samninganefndar sveitarfélaga. Rakel hefur víðtæka reynslu af kjaramálum, samningagerð og stjórnun innan opinberra vinnustaða og hefur undanfarin ár leitt samninganefnd Reykjavíkurborgar.

Rakel hefur starfað hjá Reykjavíkurborg frá árinu 2007, fyrst samhliða námi og síðar sem lögfræðingur og teymisstjóri á skrifstofu kjaramála. Hún hefur setið í samninganefnd Reykjavíkurborgar frá árinu 2018 og var skipuð varaformaður nefndarinnar árið 2019. Árið 2022 tók hún við starfi skrifstofustjóra kjaramála hjá mannauðssviði borgarinnar og gegndi frá þeim tíma jafnframt formennsku í samninganefnd Reykjavíkurborgar.
Rakel er með MLgráðu og ‑BAgráðu í lögfræði frá Háskólanum‑ í Reykjavík, hefur málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi og lauk viðurkenndri sáttamiðlaramenntun frá The Mediator’s Institute of Ireland árið 2022.
„Það er mikill fengur að fá Rakel á kjarasvið Sambandsins og hún kemur með mikla reynslu af kjaramálum, samningaviðræðum og daglegum samskiptum við starfsfólk sveitarfélaga og stéttarfélög,“ segir Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambandsins. „Hún hefur góða yfirsýn yfir málaflokkinn, sterka samningafærni og lausnamiðaða nálgun sem mun nýtast teyminu strax frá fyrsta degi.“