Sambandið
Stjórn Sambandsins fundaði í 1000. skipti
11. júní 2026
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga fundaði í vikunni í 1000. skipti frá stofnun Sambandsins árið 1945. Markar fundurinn ákveðin tímamót í sögu Sambandsins sem hefur gegnt lykilhlutverki í samvinnu íslenskra sveitarfélaga og eflingu sveitarstjórnarstigsins í meira en átta áratugi.

Frá upphafi hefur hlutverk Sambandsins verið að gæta hagsmuna sveitarfélaga, efla samstarf þeirra og vera sameiginlegur vettvangur í samskiptum við ríkið. Á þessum tíma hafa orðið miklar breytingar á íslensku samfélagi og starfsemi sveitarfélaga vaxið verulega – bæði að umfangi og ábyrgð. Verkefni á borð við leikskóla, skólamál, félagsþjónustu, skipulagsmál og umhverfismál hafa tekið miklum breytingum og kröfur til sveitarfélaga aukist jafnt og þétt.
Sambandið hefur í gegnum árin komið að fjölmörgum stórum hagsmunamálum sveitarfélaga, allt frá fjármálum og kjarasamningum til stafrænnar þróunar og eflingar lýðræðis og þjónustu við íbúa. Fundurinn er því ekki aðeins táknrænn áfangi heldur einnig áminning um mikilvægt hlutverk sveitarfélaga í íslensku samfélagi og það samstarf sem byggt hefur verið upp á vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga frá árinu 1945.