Fara í aðalefni

Fjármál

Nú hafa yfir 45 sveit­ar­fé­lög skil­að árs­reikn­ing­um í Upp­lýs­inga­veitu sveit­ar­fé­laga

10. júní 2026

Vel gengur að safna ársreikningum sveitarfélaga fyrir árið 2025 og nú þegar hafa yfir 45 sveitarfélög skilað inn gögnum í nýja Upplýsingaveitu sveitarfélaga hjá Sambandinu.

Samband íslenskra sveitarfélaga safnar nú í fyrsta sinn ársreikningum sveitarfélaga beint inn í nýja Upplýsingaveitu sveitarfélaga. Á sama tíma safnar Hagstofa Íslands ársreikningunum áfram með sama hætti og áður, en frá og með næsta ári mun Sambandið taka alfarið við söfnun þeirra. Samhliða þessu fær Sambandið mikilvægt tækifæri til að sannreyna nýtt fyrirkomulag og þróa áfram gagnasöfnun sveitarfélaga.

Markmið breytinganna er að auka sjálfvirkni, bæta gæði fjárhagsupplýsinga sveitarfélaga og styrkja samanburðarhæfni þeirra. Þá er einnig lagt upp með að bæta endurgjöf til sveitarfélaga og einfalda vinnslu og greiningu gagna.

Það er mikilvægt að sveitarfélög skili ársreikningum sínum tímanlega til Sambandsins svo hægt sé að birta áreiðanlegar og samanburðarhæfar upplýsingar um rekstur sveitarfélaga um land allt. Slík gögn nýtast sveitarfélögunum sjálfum og öðrum hagaðilum við greiningu og samanburð á rekstri og þróun sveitarfélaga.

Á undanförnum árum hefur starfsemi sveitarfélaga þróast hratt og því hefur verið ráðist í endurskoðun á framsetningu fjárhagsupplýsinga, málaflokkum og sundurliðun gagna. Sú vinna hefur verið unnin í nánu samstarfi við starfsfólk sveitarfélaga með það að markmiði að tryggja betra samræmi, aukin gæði gagna og sterkari grunn fyrir nýju Upplýsingaveituna.

Ársreikningar 2025

Hér má finna leiðbeiningar vegna skila ársreikninga

Sambandið biður sveitarfélögin að skila útfylltu formi ásamt fylgiskjölum til upplysingaveita@samband.is