Fjármál
Bæði Sambandið og Hagstofa safna ársreikningum sveitarfélaga fyrir árið 2025
12. maí 2026
Samband íslenskra sveitarfélaga mun nú í fyrsta sinn safna ársreikningum sveitarfélaga beint inn í nýja Upplýsingaveitu sveitarfélaga. Hagstofa Íslands mun einnig safna ársreikningunum fyrir árið 2025 með sama hætti og áður en á næsta ári mun Sambandið taka alfarið við söfnun þeirra. Með því að safna ársreikningunum á báðum stöðum fær Sambandið gott tækifæri til að sannreyna breytt fyrirkomulag.

Sem skref í því að taka við Upplýsingaveitu sveitarfélaga og hýsingu gagnagrunnsins sem henni fylgir stefnir Sambandið að aukinni sjálfvirkni í skilum, bættum gæðum fjárhagsupplýsinga og aukinni samanburðarhæfni þeirra. Jafnframt er markmiðið að auka skilatíðni og bæta endurgjöf til sveitarfélaga.
Til þess að geta nýtt fjárhagsupplýsingar sveitarfélaga sem best þarf að uppfæra og þróa áfram þau gögn sem berast í gagnagrunninn. Margt hefur breyst í starfsemi sveitarfélaga á undanförnum árum og því þarf að auka kröfur um færslu á bókhaldi, fjölga kostnaðarstöðum meðal málaflokka og gera um leið skýrar leiðbeiningar til að auka samanburðarhæfni bókhaldsgagna.
Með aðstoð frá starfsfólki sveitarfélaganna og þekkingu þeirra og reynslu á rekstri sveitarfélaga, færslu bókhalds og framsetningu á fjárhagsupplýsingum sveitarfélaga, hefur Sambandið farið í endurskoðun á ákvæði reglugerða og laga um framsetningu ársreikninga, fjárhagsáætlana og viðauka við fjárhagsáætlanir, ásamt ákvæðum sveitarstjórnarlaga um fjárhagsupplýsingar og með samræmi og samanburðarhæfni að leiðarljósi. Breytingarnar leggja grunn að nýrri Upplýsingaveita sveitarfélaga með uppfærðum málaflokkum og deildum við sundurliðun fjárhagsupplýsinga sveitarfélaga, samfellu í gögnum og bættu gæði gagna.