Fara í aðalefni

Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum

Mik­il­vægt skref stig­ið í jöfn­un raf­orku­kostn­að­ar

19. júní 2026

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum fagnar því að Alþingi hafi samþykkt frumvarp um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku.

Með lögunum er stigið mikilvægt skref til aukinnar jöfnunar á dreifikostnaði raforku í dreifbýli og á köldum svæðum. Málið hefur mikla þýðingu fyrir heimili og fyrirtæki sem búa við hærri dreifikostnað vegna búsetu og aðstæðna.

Stjórn SSKS þakkar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir framlagningu málsins og Alþingi fyrir að klára þetta mikilvæga mál fyrir þinglok. Afgreiðslan sýnir skilning á því að aðgengi að raforku á sanngjörnu verði er byggðamál, jafnræðismál og grundvallarforsenda búsetu og atvinnulífs um allt land.