Opnað hefur verið fyrir umsóknir kynningaaðila á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2026
15. júní 2026
Þann 8. október hefst Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 sem haldin verður á nýrri staðsetningu og þar gefst meira pláss fyrir kynningarbása. Frestur til að skrá fyrirtæki eða stofnanir og óska eftir kynningarbás verður til 26. júní nk.
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 verður dagana 8. og 9. október næstkomandi. Í þetta sinn verður ráðstefnan haldin í Vör, glænýrri farðþegamiðstöð Faxaflóahafnar við Skarfabakka. Á ráðstefnunni verða fjölbreytt erindi um málefni er tengjast fjármálum sveitarfélaga, stöðu þeirra og framtíðarsýn. Undanfarin ár hafa um 500 manns sótt ráðstefnuna en þar er fyrst og fremst um kjörna fulltrúa sveitarfélaganna og stjórnendur sveitarfélaga að ræða, ekkí síst fjármálastjórar þeirra. Kynningarbásar verða fyrir utan ráðstefnusalinn á fimmtudeginum 8. október, þar sem ráðstefnugestir ganga um í upphafi og lok dags og í hádeginu.
Hér fyrir neðan má finna umsóknarformið, en þar má einnig finna frekari upplýsingar.
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026
Hlekkur að umsóknarformi
Fyrir fyrirtæki sem hafa áhuga á að vera með kynningabás á ráðstefnunni 8. október 2026
