Fara í aðalefni

Styrkir

Vinnu­stofa í LIFE um­sókna­skrif­um

8. júní 2026

Þann 25. júní mun Rannís bjóða uppá heilsdags vinnustofu í skrifum umsókna í  LIFE áætlunina, en LIFE er umhverfi- og loftslagsáætlun ESB.

Hægt að sækja um styrki í áætlunina til afar fjölbreyttra verkefna sem tengjast náttúruvernd, líffræðilegum fjölbreytileika, orkuskipta, hringrásarhagkerfi, vatnsgæði, mengunarvarnir, minnkun losunar og aðlögun að loftslagsbreytingum, svo eitthvað sé nefnt. Opnað hefur verið fyrir umsóknir í LIFE áætlunina vegna úthlutunar ársins 2026.

Vinnustofan er opin umsækjendum á öllum stigum umsóknarferlisins, þ.e. allt frá ómótaðri verkefnahugmynd yfir í fullmótað samstarfsverkefni og fyrir umsóknarfresti áranna 2026 og 2027. Vinnustofan verður leidd af erlendum ráðgjöfum og mun hún fara fram á ensku. Þátttakendum býðst að senda inn verkefnahugmynd fyrir vinnustofuna til að fá verkefnamiðaða ráðgjöf frá ráðgjöfunum fram til 18. júní. Ráðgjafarnir munu mögulega hafa samband við þátttakendur fyrir vinnustofuna til að fá frekari upplýsingar vegna undirbúnings.

Skráningargjald er 4900 kr en innifalið í verðinu eru vinnustofan, hádegisverður og síðdegiskaffi. Reikningur verður sendur á þátttakendur eftir skráningu en gott er að hafa í huga að mörg stéttarfélög styrkja þátttöku í námskeiði sem þessu.

Vinsamlegast skráið þátttöku hér

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður en opið verður fyrir skráningar þar til fullt verður á vinnustofuna. Reynist eftirspurnin meiri en framboðið áskilja skipuleggjendur sér þann rétt að setja þau í forgang sem stefna á að skila inn LIFE umsókn í ár.

Staðsetning og nánari dagskrá verður send út síðar.