Stafræn vegferð
Sameiginleg framtíðarsýn um stafræn verkefni og gagnamál í félagsþjónustu liggur fyrir
8. júlí 2026
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa lagt fram sameiginlega framtíðarsýn og aðgerðaáætlun um stafræn verkefni og gagnamál í félagsþjónustu til ársins 2028.

Framtíðarsýnin og aðgerðaáætlunin byggja á samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um öflun og nýtingu gagna og stafræna þróun hins opinbera í velferðarþjónustu.
Markmiðið er að allir lykilaðilar sem starfa að félagsþjónustu hafi sameiginlega sýn á grunnskipulag, gögn, gagnasöfn, tengingar og hagnýtingu gagna. Með því er leitast við að tryggja samfellda þjónustu þvert á stjórnsýslustig, betri nýtingu fjármuna og markvissari stefnumótun í þágu notenda þjónustunnar.
Í dag skortir samræmd gögn á landsvísu, kerfi tala ekki nægilega vel saman og yfirsýn yfir veitta félagsþjónustu, þarfir fólks og biðlista er takmörkuð.
· Í framtíðarsýninni er meðal annars gert ráð fyrir samræmdri grunnskráningu í allri lögbundinni félagsþjónustu, að upplýsingar um réttindi og þjónustu verði aðgengilegar á einum stað á island.is og að unnið verði að sameiginlegri umsókn og samræmdu umsóknarferli óháð því hvar fólk býr á landinu.
· Áhersla er lögð á að bæta aðgengi að gögnum þannig að allir aðilar sem þurfa á þeim að halda til að sinna lögbundnum verkefnum hafi betri yfirsýn og aðgang að samræmdri tölfræði. Jafnframt verði unnið að því að gögn flæði stafrænt milli þjónustuaðila eftir því sem við á, í stað þess að þau séu vistuð á mörgum stöðum.
Traustur grunnur lagður
„Við þurfum traust og samræmd gögn til að geta tekið réttar ákvarðanir og veitt fólki bestu mögulegu þjónustu. Með sameiginlegri framtíðarsýn og aðgerðaáætlun ríkis og sveitarfélaga leggjum við traustan grunn að því að gögn nýtist betur, nauðsynleg yfirsýn náist og félagsþjónusta verði samfelldari. Þannig bætum við þjónustuna og förum um leið skynsamlega með fjármuni,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.
„Með þessari sameiginlegu framtíðarsýn erum við að stíga mikilvægt skref í átt að samræmdari og skilvirkari félagsþjónustu um land allt. Betri gögn og sterkari stafrænar lausnir munu auðvelda sveitarfélögum að veita fólki markvissari þjónustu og skapa um leið betri grunn fyrir stefnumótun og ákvarðanatöku,“ segir Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Aðgerðaáætlunin nær til áranna 2026 til 2028 og skiptist í verkefni sem miða að því að ná meginmarkmiðum framtíðarsýnarinnar fyrir lok tímabilsins. Meðal aðgerða í ár eru heildstæð stafræn innleiðing í stuðningsþjónustu, þróun heildstæðs mats á stuðningsþörf, undirbúningur nauðsynlegra lagabreytinga og miðlægt aðgengi að gögnum fyrir yfirsýn og tölfræði.
Aðgerðaáætlunin verður uppfærð í lok hvers árs með nánari upplýsingum um aðgerðir næsta árs og þau verkefni sem heyra þar undir.