Fara í aðalefni

Sambandið

Al­mar nýr for­mað­ur stjórn­ar Sam­bands­ins

16. júlí 2026

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ, verður næsti formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hann var einn í framboði og því sjálfkjörinn, en framboðsfrestur rann út á miðnætti 15. júlí.

Almar Guðmundsson, nýr formaður stjórnar Sambandsins.
Almar Guðmundsson, nýr formaður stjórnar Sambandsins.

Almar tók við embætti bæjarstjóra Garðabæjar eftir sveitarstjórnarkosningarnar 2022 og var endurráðinn í upphafi þessa kjörtímabils. Hann hefur setið í bæjarstjórn Garðabæjar frá árinu 2014, var formaður fjölskylduráðs 2018-2022 og í bæjarráði frá 2018-2022. Þá hefur hann setið í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins undanfarin ár. Hann er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá London Business School.

Almar var framkvæmdastjóri Reiknistofu lífeyrissjóða áður en hann tók við starfi bæjarstjóra. Hann hefur á sínum starfsferli starfað hjá ýmsum fjármálafyrirtækjum, meðal annars Íslandsbanka og Kviku. Á árunum 2009-2017 var hann framkvæmdastjóri hagsmunasamtaka fyrirtækja, fyrst hjá Félagi atvinnurekenda og síðan hjá Samtökum iðnaðarins.

Almar er uppalinn Garðbæingur, en á ættir að rekja til Akraness og Bolungarvíkur. Hann er kvæntur Guðrúnu Zoega, hjúkrunarfræðingi, og eiga þau fimm börn og eitt barnabarn.

Almar tekur við sem formaður stjórnar á Landsþingi Sambandsins sem fram fer á Akureyri dagana 23.-25. september.