Fara í aðalefni

Lýðræði

Kosn­inga­þátt­taka jókst um 4,23%

23. júní 2026

Kosningaþátttaka í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru 16. maí 2026 jókst um 4,23 prósentustig frá síðustu sveitarstjórnarkosningum. Kjörsókn var 67,04% samanborið við 62,81% árið 2022.

Fyrir kosningarnar stóð Sambandið, í samstarfi við innviðaráðuneytið, fyrir sérstöku átaki með það að markmiði að hvetja fólk til að nýta kosningarétt sinn og auka þátttöku í sveitarstjórnarkosningum. Bogi Ágústsson var andlit herferðarinnar og hvatti landsmenn til að láta rödd sína heyrast.

Kjörsókn jókst töluvert í 10 stærstu sveitarfélögum landsins, þar sem stór hluti kjósenda býr. Þannig jókst kjörsókn í Reykjavík um 4,31%, í Kópavogi 9,50%, í Garðabæ um 9,80% og um 7% í Mosfellsbæ og á Akranesi.

Þetta er ánægjuleg þróun í ljósi þess að þátttaka í sveitarstjórnarkosningum hefur farið lækkandi í nær öllum kosningum frá aldamótum, sérstaklega í stærri sveitarfélögum. Nú sést hins vegar skýr viðsnúningur og aukin þátttaka meðal kjósenda víða um land.

„Sveitarstjórnir hafa mikil áhrif á daglegt líf fólks um allt land og því skiptir miklu máli að sem flest taki þátt í að velja sína fulltrúa. Það er mjög ánægjulegt að sjá góða aukningu í kjörsókn og þessi viðsnúningur sýnir að það skiptir máli að fara í markvissa vinnu til þess að fá fólk á kjörstað. Sambandið mun áfram vinna að því með sveitarfélögunum og stjórnvöldum að efla þátttöku almennings í sveitarstjórnarkosningum, og sérstaklega meðal ungs fólks og nýrra íbúa,“ segir Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.