Evrópusamvinna
Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins ræðir stöðu lýðræðis og mannréttinda
10. apríl 2026
Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins var haldið í Strassborg dagana 27. mars – 2 apríl. Meðal þess sem þingið fjallaði um var innrás Rússlands í Úkraínu, aðgangur að heilsugæslu í fámennum og dreifðum byggðum og ofbeldi gegn kjörnum fulltrúum.

Á þinginu kom fram að ofbeldi gegn kjörnum fulltrúum er stöðugt að aukast í Evrópu og það á ekki síður við um kjörna fulltrúa á sveitarstjórnarstigi. Styrkur sveitarstjórnarstigsins felst í nálægð kjörinna fulltrúa við íbúa, en því fylgja einnig áskoranir, ekki síst þegar kemur að hótunum og ofbeldi. Í ljósi sveitarstjórnarkosninga á Íslandi í maí á þessu ári er sérstaklega vert að nefna að í kosningabaráttu eru hótanir oft notaðar til að letja frambjóðendur frá því að bjóða sig fram og algent er að fólk bjóði sig ekki aftur fram að loknu einu kjörtímabili, meðal annars vegna þess álags, áreitis og hótana sem starfinu fylgir.
Þá fjallaði þingið um aðgang íbúa fámennra og dreifra byggða að heilsugæslu. Víða í Evrópu er aðgangur íbúa að heilsugæslu mikil áskorun og þar er Ísland engin undantekning. Skortur á fagfólki og kostnaður í tengslum við rekstur heilsugæslu er víða viðvarandi vandi. Þá sýna rannsóknir á Íslandi að fólk sem býr á landsbyggðinni telur heilsu sína vera almennt verri en þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu.
Þingið er eina stofnun sinnar tegundar í Evrópu sem hefur það hlutverk að fylgjast með og efla þróun lýðræðis í sveitarfélögum og héruðum í aðildarríkjum Evrópuráðsins.
Fulltrúar Íslands á þinginu að þessu sinni voru Heiða Björg Hilmisdóttir, Ásgerður K. Gylfadóttir og Þórhildur Kristínardóttir ungliðafulltrúi Íslands.