Hafnasamband Íslands
Opið fyrir skráningu á hafnasambandsþing 2026
16. september 2026
Opnað hefur verið fyrir skráningu á hafnasambandsþing sem fram fer í Hljómahöllini í Reykjanesbæ 22. og 23. október nk.

Kjörgengir á hafnasambandsþing og í stjórn Hafnasambands Íslands eru kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum og hafnarstjórnum, auk varamanna þeirra. Að auki eru kjörgengir starfsmenn hafna og sveitarfélaga. Heimilt er aðildarhöfn að senda fleiri fulltrúa en þá sem hafa atkvæðisrétt en greiða þarf 28.500 kr. fyrir hvern aukafulltrúa sem sækir þingið.
Þingfulltrúar sjá sjálfir um ferðatilhögun og gistingu. Er fundarmönnum bent á að bóka gistingu hið fyrsta. Upplýsingar um gistimöguleika voru sendar á aðildarhafnir í janúar sl.
Dagskrá er í vinnslu en áformað er að hún hefjist kl. 10:00 að morgni fimmtudags og ljúki um hádegi föstudaginn 23. október.