Kjaramál
Launatöfluauki virkist ekki í kjarasamningum sveitarfélaga
10. september 2026
Í núgildandi kjarasamningum stéttarfélaga við opinbera launagreiðendur (2024-2028) er að finna viðauka um svokallaðan launatöfluauka.

Tilgangur launatöfluaukans er að stuðla að því að þróun launakostnaðar starfsfólks á opinberum markaði innan vébanda heildarsamtaka haldi að jafnaði í við þróun launakostnaðar sambærilegra hópa á almennum markaði.
Á gildistíma kjarasamninganna átti í þrjú skipti að bera saman þróunina milli markaða og kanna hvort greiða þurfi út launatöfluauka til heildarsamtaka starfsfólks sveitarfélaga.
Niðurstöður nefndar um launatöfluauka, sem skipuð er fulltrúum heildarsamtaka launafólks (BHM, KÍ, BSRB og ASÍ) og opinberra launagreiðenda (ríki, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg), er að launatöfluauki virkjast ekki í kjarasamningum sveitarfélaga á öðru viðmiðunartímabili og því verða ekki breytingar á launatöflum þeirra 1.september 2026.