Fara í aðalefni

Opið fyr­ir skrán­ingu á fjár­mála­ráð­stefnu 2026

10. september 2026

Fjármálaráðstefna sveitarfélaga fer fram dagana 8.-9. október nk. í Vör, farþegamiðstöð Faxaflóahafna við Skarfabakka. Opnað hefur verið fyrir skráningu á vef ráðstefnunnar.

Þátttökugjald er 30.900 krónur og 12.000 krónur að auki fyrir hátíðarkvöldverð að kveldi fimmtudagsins 8. október.

Dagskrá er í vinnslu en helstu tímasetningar eru þær að ráðstefnan verður sett kl. 10:00 fimmtudaginn 8. október og stendur til u.þ.b. 16:00. Hlé verður þá gert á dagskránni til kl. 9:30 föstudaginn 9. október.

Hátíðarkvöldverður verður í Vör, farþegamiðstöð Faxaflóahafna, kl. 19:00-23:30 að kveldi fimmtudags.

Boðið verður upp á rútuferðir frá Hilton Reykjavík, Grand hóteli og Hörpu að morgni beggja ráðstefnudaga og til baka við ráðstefnulok. Þá verður boðið upp á rútuferðir frá sömu stöðum í tengslum við hátíðarkvöldverðinn. 

Skráningar og dagskrársíða fjármálaráðstefnu.