Samstarfsstofnanir
Opið fyrir skráningu á aðalfundi
22. september 2026
Opnað hefur verið fyrir skráningu á ársfund Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum og aðalfund Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.
Dagskrá beggja fundanna hefur verið birt á vefsvæðum þeirra, www.ssks.is og www.sjavarutvegssveitarfelog.is.
Fundur SSKS hefst kl. 11:00 og stendur til 12:30 en fundur sjávarútvegssveitarfélaga hefst kl. 13:00 og stendur til 14:30. Boðið verður upp á hádegisverð milli fundanna. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku.
Jöfnunarsjóður
Þá er rétt að minna á að ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verður haldinn sama dag, miðvikudaginn 7. október, á Hilton Reykjavík í Reykjavík. Til fundarins eru boðaðir framkvæmdastjórar sveitarfélaga eða staðgenglar þeirra, fulltrúar samtaka sveitarfélaga og aðrir samstarfsaðilar Jöfnunarsjóðs.
Fundurinn hefst kl. 16:00 en dagskrá verður auglýst nánar síðar á vefsíðu Jöfnunarsjóðs.