Fara í aðalefni

Sveitarfélög

Mælti fyr­ir nýj­um heild­ar­lög­um um sveit­ar­stjórn­ir

16. september 2026

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi að nýjum heildarlögum um sveitarstjórnir en í því felast víðtækar breytingar frá gildandi sveitarstjórnarlögum.

Í frumvarpinu eru gerðar breytingar á fjölmörgum ákvæðum eldri sveitarstjórnarlaga, þar á meðal almennum reglum sem varða stjórnsýslu sveitarfélaga, íbúalýðræði og samráð, samvinnu sveitarfélaga, fjármál og reikningsskil sveitarfélaga, starfshætti kjörinna fulltrúa, eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélaga, o.fl.

Frekari upplýsingar um efni frumvarpsins má finna á vef stjórnarráðsins.