Fara í aðalefni

Evrópusamvinna

Evr­ópsk sveit­ar­fé­lög áforma 31 millj­arð evra í orku­fjár­fest­ing­ar vegna Europe­an City Facility

10. mars 2026

Sveitarfélög og borgir sem fá stuðning frá European City Facility (EUCF), sem Sambandið veitir ráðgjöf vegna, áforma samtals 31 milljarð evra í fjárfestingar í sjálfbærum orkulausnum víðs vegar um Evrópu.

Þetta kemur fram í nýju EUCF Impact Dashboard. Þrjú sveitarfélög á Íslandi hafa þegar fengið slíka styrki. European City Facility (EUCF) styður sveitarfélög við að þróa fjárfestingarhæf orkuskiptaverkefni og gegnir þannig mikilvægu hlutverki í að hjálpa Evrópu að ná loftslags- og orkumarkmiðum sínum.

Sveitarstjórnir gegna lykilhlutverki í að ná loftslags- og orkumarkmiðum Evrópu. Með stuðningi EUCF fá þær aðgang að fjármagni, verkfærum og sérfræðiþekkingu til að þróa verkefni sem geta laðað að stærri fjárfestingar. Hingað til hafa 330 af 400 styrkþegum þróað fjárfestingarhugmyndir sínar, og samkvæmt fyrstu vöktunarskýrslum hafa 1,2 milljarðar evra þegar verið tryggðir. Mörg verkefni eru þó enn á undirbúningsstigi og því er búist við að fjárfestingar aukist enn frekar.

Verkefnin ná yfir fjölbreytt svið, meðal annars endurbætur á byggingum, hitaveitukerfi, endurnýjanlega orku, snjallraforkunet og sjálfbærar samgöngur. Samkvæmt áætlunum gætu þau skilað yfir 15.000 GWh í árlegum orkusparnaði, nær 12.000 GWh í nýrri endurnýjanlegri orkuframleiðslu og um 11 milljóna tonna samdrætti í CO₂-losun á ári.

Upphaflegur stuðningur EUCF til sveitarfélaga nam um 25 milljónum evra, sem undirstrikar sterk margföldunaráhrif verkefnisins.

Nú er hægt að fylgjast með stöðu þessara verkefna á mælaborðinu EUCF Impact Dashboard sem safnar saman þessum upplýsingum og veitir yfirlit bæði yfir væntar og staðfestar fjárfestingar sem styrkþegar hafa greint frá. Eftir því sem fleiri borgir ljúka undirbúningi verkefna sinna mun EUCF Impact Dashboard halda áfram að sýna hvernig metnaður á sveitarstjórnarstigi breytist í raunverulegar loftslagsaðgerðir.