Sambandið
Ný þjónustukort aðgengileg á vef Sambandsins
10. mars 2026
Ný þjónustukort eru nú aðgengileg á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga. Kortin má finna neðarlega á forsíðu, þar sem notendur fá skýra yfirsýn yfir helstu þjónustusvæði sveitarfélaga um allt land.

Þau kort sem nú þegar eru aðgengileg sýna landshluta, barnavernarumdæmi og félagsþjónustusvæði á landinu. Þjónustukortin eru hugsuð til að einfalda sveitarfélögum að finna réttar og uppfærðar upplýsingar um mörk og skipulag þjónustusvæða á einfaldan og aðgengilegan hátt. Með þessum hætti er auðveldara að átta sig á verkaskiptingu og samstarfi sveitarfélaga á ólíkum sviðum.

Unnið er að því að bæta við fleiri þjónustukortum á næstu misserum, og munu þau bætast inn á vefinn jafnharðan og þau verða tilbúin.