Kjaramál
Virðismat kennarastarfa: Mikilvægt að leiða verkefnið til lykta
30. október 2026
Góður gangur hefur verið í vinnu við virðismat kennarastarfa sem Sambandið, fjármála- og efnahagsráðuneytið og Kennarasamband Íslands hafa unnið markvisst að í kjölfar undirritunar kjarasamninga aðila þann 25. febrúar 2025.

Á þessum tímapunkti er mikilvægt að aðilar haldi áfram af fullum krafti og leiði þessa vinnu til lykta. Mikil vinna og fjármunir hafa þegar verið lagðir í verkefnið sem reynst hefur umfangsmeira og tímafrekara en lagt var upp með í upphafi og til mikils er að vinna fyrir alla aðila að ljúka því með farsælum hætti. Í gildandi kjarasamningi fengu félagsmenn KÍ til dæmis myndarlega greitt inn á verkefnið.
Myndin hér að neðan sýnir breytingu grunntímakaups frá febrúar 2024 til janúar 2026 borið saman á milli heildarsamtaka. Heimild: Kjaratölfræðinefnd-vorskýrsla 2026.

Virðismat kennarastarfa er ekki einfalt verkefni. Það snýst um að meta ólík störf, ábyrgð og kröfur með faglegum, gagnsæjum og málefnalegum hætti og eðli málsins samkvæmt er slík vinna ekki unnin í spretti. Það breytir því ekki að verkefnið er mikilvægt og þess virði að leggja á sig þá vinnu sem þarf til að ná niðurstöðu.
Sveitarfélögin ásamt ASÍ, BSRB og BHM hafa haldið úti mati á virði starfa frá síðust aldamótum og nú er KÍ síðasti hópurinn sem fer í slíka vinnu.
Miklir sameiginlegir hagsmunir
Mikið er í húfi að vel takist til. Niðurstaðan skiptir máli fyrir kennara og sveitarfélögin sem vinnuveitendur þeirra, en ekki síður fyrir skólastarf og samfélagið allt. Sameiginlegir hagsmunir aðila felast nú í því að byggja áfram á þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnin og ná niðurstöðu sem báðir aðilar geta staðið að.
Vinna við virðismat kennara fer jafnframt fram við krefjandi efnahagslegar aðstæður. Vextir og verðbólga hafa verið há um langt skeið og því skiptir máli að aðilar vinnumarkaðarins leggi sitt af mörkum til að stuðla að efnahagslegum stöðugleika.
Sambandið leggur ríka áherslu á að vinnunni verði haldið áfram og verkefnið leitt til lykta. Áskoranirnar eru vissulega til staðar og verkefnið umfangsmikið, en árangurinn hingað til sýnir að hægt er að ná árangri með verkefninu. Nú skiptir mestu að halda samtalinu áfram, gefa því þann tíma sem það þarf og nýta þá miklu vinnu sem þegar hefur verið lögð í verkefnið til að ná farsælli niðurstöðu og stuðla að áframhaldandi sátt á vinnumarkaði.