Viðburðir
Vinnustofur og opinn fundur um samkeppnismat og opinber innkaup
16. febrúar 2026
Dagana 17.–19. febrúar standa Samkeppniseftirlitið, Stjórnarráðið og OECD fyrir röð vinnustofa og opnum fundi um samkeppni, reglubyrði og opinber innkaup.

Markmiðið er að efla þekkingu opinberra aðila á bestum starfsháttum, draga úr hindrunum á samkeppni og styrkja varnir gegn samráði í útboðum.
Sambandið hvetur sveitarfélög eindregið til að taka þátt, enda snerta þessi mál beint daglegt starf sveitarstjóra, fjármálastjóra, innkaupafólks og annarra stjórnenda. Hægt verður að fylgjast með stórum hluta vinnustofanna í gegnum Teams, auk þess sem opni fundurinn verður í streymi.
Þriðjudagur 17. febrúar – Vinnustofa um samkeppnismat
Fyrsta vinnustofan fjallar um samkeppnismat á lögum og reglum, með áherslu á leiðir til að draga úr reglubyrði og stuðla að skilvirkari stjórnsýslu. Sérfræðingar frá OECD leiða vinnustofuna. Dagskrá má finna hér og skráning fer fram hér.
Miðvikudagur 18. febrúar – Vinnustofa um opinber útboð
Önnur vinnustofan beinist að opinberum innkaupum og aðgerðum gegn samráði í útboðum, sem er eitt helsta alþjóðlega áhættusvæði í opinberri starfsemi. Sérfræðingur OECD mun stýra vinnustofunni. Dagskrá má finna hér og skráning hér.
Fimmtudagur 19. febrúar – Opinn fundur um samkeppni og hið opinbera
Vikunni lýkur með opnum fundi þar sem fjallað verður almennt um samkeppni og hið opinbera, með þátttöku innlendra og erlendra sérfræðinga.
Frekari upplýsingar um dagskrá og skráningu má finna hér.