Fara í aðalefni

umhverfi

Nýr leið­ar­vís­ir um að­lög­un sveit­ar­fé­laga að lofts­lags­breyt­ing­um

23. mars 2026

Nýr leiðarvísir hefur verið gefinn út til að styðja sveitarfélög við aðlögun að áhrifum loftslagsbreytinga. Leiðarvísirinn er afurð aðgerðar C.10 í byggðaáætlun þar sem fimm ólík sveitarfélög tóku þátt í að prufa og móta aðferðafræði um áhættu- og viðkvæmniskimun og mótun aðlögunaraðgerða.

Leiðarvísirinn var kynntur á málþinginu Aðlögun sveitarfélaga að loftslagsbreytingum – frá áskorunum til aðgerða sem var haldið á Akureyri þann 12. febrúar s.l. Á málþinginu kynnti Veðurstofan einnig nýjan vef um loftslagsþjónustu sem er sérstaklega miðaður að sveitarfélögum. Þar má finna ýmis nytsamleg tól svo sem Loftslagsatlas Íslands, gagnvirkar skýringamyndir og upplýsingar um þróun loftslagsbreytinga og afleiðingar þeirra á Íslandi.

Nú vinnur Sambandið, í samstarfi við Byggðastofnun og fleiri opinberar stofnanir, að því að undirbúa næstu skref í stuðningi við sveitarfélög þegar kemur að aðlögun þeirra að loftslagsbreytingum og mun sú vinna m.a. byggja á afurðum fyrrnefndrar aðgerðar C.10 í byggðaáætlun. Sífellt mikilvægara er fyrir íslensk sveitarfélög að átta sig á því hvaða hættur steðja að vegna loftslagsbreytinga og grípa til aðgerða til að verja samfélag og innviði.

Nýlega var viðamikilli styrkumsókn skilað inn í LIFE áætlun Evrópusambandsins um aðlögun að loftslagsbreytingum. Fáist sá styrkur mun Sambandið geta stutt enn þéttar við bakið á sveitarfélögunum t.d. með ítarlegu fræðsluefni, vinnustofum um framkvæmd áhættu- og viðkvæmniskimunar o.fl.

Sveitarfélög sem vilja demba sér í að nýta leiðarvísinn og hefjast handa við að meta hvaða loftslagsáhættur kunna að vera til staðar, og jafnvel byrja að móta og forgangsraða aðgerðum, eru hvött til að hafa samband og nýta sér stuðning Sambandsins og Byggðastofnunar. Mikilvægt er að við söfnum og miðlum reynslu sem best til að sveitarfélögin þurfi ekki öll að finna upp aðlögunarhjólið í sitt hvoru lagi.

Hagnýtar upplýsingar

Frá áskorunum til aðgerða – leiðarvísir fyrir sveitarfélög um aðlögun að áhrifum loftslagsbreytinga

Vefur Veðurstofunnar um loftslagsþjónustu og aðlögun

Aðlögun sveitarfélaga að loftslagsbreytingum – Verkfærakista Loftslagsvænni sveitarfélaga