Fara í aðalefni

Umhverfis Ísland

Kynn­ing á nýrri skýrslu um með­höndl­un lífúr­gangs á Ís­landi

17. ágúst 2026

Samband íslenskra sveitarfélaga vekur athygli á kynningarfundi á nýrri skýrslu um meðhöndlun lífúrgangs á Íslandi.

Á mánudag 31. ágúst kl. 13 mun Stefán Gíslason, frá Umhverfisráðgjöf Íslands, fara yfir og kynna helstu niðurstöður nýrrar skýrslu sem hann vann fyrir hönd Samband íslenskra sveitarfélaga um meðhöndlun lífúrgangs á Íslandi. Fundurinn verður á Teams.

Markmið skýrslunnar er að varpa ljósi á hversu vel núverandi innviðir sveitarfélaga og einkaaðila á markaði geti mætt núverandi og framtíðar þörf fyrir meðhöndlun lífúrgangs á landinu öllu og hvaða lausnir séu til boða til að bæta úr því sem á vantar.

Fundurinn er ætlaður framkvæmdastjórum, sveitarstjórnum og starfsfólki sveitarfélaga sem og starfsfólki landshlutasamtaka sveitarfélaga.

Dagskrá:

13:00 – Setning fundar

13:05 - Stefán Gíslason fer yfir markmið og helstu niðurstöður skýrslunnar

13:40 - Opið fyrir umræður og spurningar

14:00 - Fundi lýkur

Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við hugrun.geirsdottir@samband.is eða freyjap@samband.is til að fá Teams fundarhlekk.