Fara í aðalefni

Sambandið

Nor­rænt sam­starf sveit­ar­fé­laga eflt á fundi í Finn­landi

18. ágúst 2026

Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, tók í síðustu viku þátt í fundi framkvæmdastjóra samataka sveitarfélaga á Norðurlöndum sem fram fór í Finnlandi.

Við undirskrift viljayfirlýsingarinnar
Við undirskrift viljayfirlýsingarinnar

Á fundinum voru ræddar helstu sameiginlegu áskoranir og tækifæri sveitarfélaga á Norðurlöndunum, meðal annars á sviði þjónustuþróunar, stafrænna lausna, lýðræðis, innviðauppbyggingar og viðnámsþróttar samfélaga. Fundurinn er liður í reglubundnu samstarfi norrænna samtaka sveitarfélaga sem miðar að aukinni þekkingarmiðlun og sterkari sameiginlegri rödd sveitarfélaga á Norðurlöndunum.

Samhliða fundi framkvæmdastjóranna komu formenn systursamtaka Sambandsins á Norðurlöndum saman og undirrituðu sameiginlega viljayfirlýsingu um aukið samstarf byggt á sameiginlegum gildum á borð við lýðræði, mannréttindi og traustri stjórnsýslu á komandi árum. Jón Björn Hákonarson, formaður Sambandsins, undirritaði yfirlýsinguna fyrir hönd Sambandsins ásamt fulltrúum samtaka sveitarfélaga í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.

Með viljayfirlýsingunni er lagður grunnur að enn nánara samstarfi norrænu samtakanna um að efla seiglu samfélaga, styrkja mikilvæga innviði og tryggja að sveitarfélög á Norðurlöndum séu sem best í stakk búin til að bregðast við áskorunum framtíðarinnar.