Umhverfis Ísland
Verðmætar loftslagsafurðir úr RECET verkefninu
22. september 2026
Undanfarin ár hafa Vestfjarðastofa, SSNE, Eimur og Íslensk Nýorka, ásamt erlendum samstarfsaðilum og sveitarfélögum í fimm löndum, unnið að umfangsmiklu loftslags- og orkuskiptaverkefni undir heitinu RECET fyrir styrk úr LIFE áætlun Evrópusambandsins. Sambandið hefur stutt við verkefnið með ýmsum hætti frá upphafi og hafa afurðir þess þegar komið að góðum notum fyrir fjölmörg íslenskra sveitarfélaga.
Ein þessara afurða er aðgerðabanki með fjölda vel skilgreindra loftslags- og orkuskiptaaðgerða sem sveitarfélög geta nýtt sér. Aðgerðabankinn hefur auk þess þegar verið nýttur til að uppfæra og auðga Verkfærakistu loftslagsvænni sveitarfélaga.
Frá loftslagsstefnum til vel skilgreindra aðgerða
Sambandið og Eimur héldu nýlega netvinnustofu með bakhópi Sambandsins um loftslagsmál þar sem fulltrúar sveitarfélaga komu saman til að ræða hvernig hægt er að færa sig frá loftslagsstefnum yfir í áþreifanlegar aðgerðir. Fundargestir fengu heimaverkefni fyrir fundinn og átti aðgerðabanki RECET verkefnisins að nýtast við að leysa það.
Þátttakendum var skipt í fjóra umræðuhópa eftir stærð sveitarfélaga. Umræðurnar beindust að þremur lykilspurningum:
- Hvaða loftslagsaðgerðir ætla sveitarfélög að setja í forgang?
- Hvaða áskorunum má búast við að mæta við innleiðingu þessara aðgerða?
- Hvaða skref þurfa sveitarfélög að taka til að koma þessum aðgerðum áfram og í framkvæmd?
Á vinnustofunni kom í ljós að þó sveitarfélög búi við ólíkar aðstæður, glíma mörg þeirra við svipaðar áskoranir sem tengjast getu, fjármagni og framkvæmd. Þátttakendur ræddu einnig hvernig verkfæri á borð við losunarbókhald, loftslagsstefnur og aðgerðaáætlanir geta stutt við ferlið að sveitarfélög færi sig frá stefnumörkun til innleiðingu aðgerða.
Í lok vinnustofunnar voru þátttakendur beðnir um að skrifa hjá sér næsta skref sem þau hyggjast hrinda í framkvæmd fyrir næsta fund bakhópsins. Markmiðið var að tryggja að umræður skiluðu raunverulegu framhaldi og áþreifanlegum árangri.
Vinnustofan var mikilvægt tækifæri fyrir sveitarfélög til að skiptast á reynslu, læra hvert af öðru og efla enn frekar vinnu sína við að stuðla að innleiðingu staðbundinna loftslagsaðgerða.
Farsælt samstarf
Sambandið fagnar RECET verkefninu, afurðum þess og samstarfinu. Jákvæð áhrif RECET fyrir íslensk sveitarfélög, orkuskipti og loftslagsaðgerðir á Íslandi eru ótvíræð og munu þau án efa halda áfram að birtast sveitarfélögum á næstu árum.