Fara í aðalefni

Stafræn vegferð

Auk­ið sam­starf Reykja­vík­ur­borg­ar og Sam­bands­ins í staf­rænni þró­un

24. mars 2026

Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri í Reykjavíkur, hafa undirritað yfirlýsingu um aukið samstarf á sviði stafrænnar þróunar.

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, og Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, við undirritun samningsins.
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, og Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, við undirritun samningsins.

Markmiðið er að samræma stefnu og aðgerðir í stafrænum lausnum, bæta þjónustu við íbúa og nýta tæknina til að auka skilvirkni og gagnsæi í opinberri stjórnsýslu.

Frá árinu 2020 hefur Samband íslenskra sveitarfélaga verið samvinnuvettvangur fyrir sveitarfélög á sviði stafrænnar þróunar. Sambandið hefur gegnt lykilhlutverki við að samræma verkefni, miðla þekkingu og tryggja að sveitarfélög um land allt geti nýtt sameiginlegar stafrænar lausnir til að bæta þjónustu og auka skilvirkni í stafrænum umbreytingum. Nú er horft til enn frekara samstarfs sveitarfélaga og ríkis til að skapa meiri slagkraft í nýsköpun, samræmdum lausnum, aukinni hagkvæmni og betri þjónustu við íbúa um land allt.

 Reykjavíkurborg hefur frá upphafi verið virkur þátttakandi í stafrænu samstarfi sveitarfélaga um stafræna þróun. Reykjavíkurborg hefur lagt til vinnuframlag og sérfræðiþekkingu á þessu sviði. Með nýrri yfirlýsingu er ákveðið að Reykjavíkurborg leggi einnig til sérstakt fjármagn til að styrkja stoðir samvinnu og samstarfs enn frekar. Með því er stigið skref sem markar tímamót í sameiginlegri uppbyggingu stafrænnar stjórnsýslu sveitarfélaga á landsvísu.

„Með auknu samstarfi erum við að taka mikilvægt skref í átt að markvissari og samræmdari stafrænni þróun sveitarfélaga. Samstarfið við Reykjavíkurborg styrkir sameiginlegar stoðir okkar og eykur getu sveitarfélaga um allt land til að veita íbúum betri, skilvirkari og hagkvæmari þjónustu og er verulega ánægjulegt að staðfesta það hér formlega,“ segir Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.

„Það er verulegt hagræði í því að sameina krafta sveitarfélaga í stafrænni þróun. Með því spörum við bæði tíma og peninga og bætum þjónustuna við íbúana.  Við höfum lagt mikla áherslu á að Reykjavík sé í fremstu röð við að hagnýta stafrænar lausnir. Það er því mjög mikilvægt að stærsta sveitarfélag landsins leggi sitt á vogarskálarnar með Sambandi íslenskra sveitarfélaga," segir Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri.