Stafræn ráðstefna Sambandsins var haldin í Grósku miðvikudaginn 25. mars við góðar undirtektir. Um 200 manns sóttu fróðlega fyrirlestra og pallborðsumræður. Að þessu sinni fengum við góða gesti frá Danmörku í heimsókn sem sannarlega tókst að vekja áhuga á umræður.

Glærur allra fyrirlesara eru nú aðgengilegar undir dagskránni á viðburðinum, en þangað inn kemur einnig upptakan eftir vinnslu hennar.
Að þessu sinni var happdrættisleikur á ráðstefnunni sem ráðstefnugestir gátu tekið þátt í. Dregnir hafa verið út vinningshafar í stafrænu happdrætti ráðstefnunnar og eru það þau Þórhildur Hafsteinsdóttir frá Reykjavíkurborg og Þorlákur Gíslason sem fá senda vinninga.
Pallborðsumræður um ábatann af starfænni þróun sveitarfélaga með Sigurjóni Ólafssyni, Ingvari Högna Ragnarssyni, Fjólu Steindóru Kristinsdóttur og Björgvini Sigurðssyni.