Stafræn vegferð
Vefkaffin eru komin aftur af stað
1. október 2026
Í fyrsta vefkaffi eftir sumarfrí, þann 5. október 2026 klukkan 11:30, fáum við að heyra frá reynslu Garðabæjar af Öruggara Námi.

Vefkaffi eru stafrænar spjallstofur sem haldnar eru reglulega yfir vetrarmánuðina, þar sem kynnt eru hin ýmsu verkefni tengd stafrænni umbreytingu sveitarfélaganna. Þar skapast góður vetvangur fyrir sveitarfélögin að deila reynslu og þekkingu og auka samtal og samstarf þeirra. Miðast er við að halda þrjú Vefkaffi á haustmánuðum og önnur 3-4 á vormánuðum. Upptökur af eldri Vefköffum má nálgast á viðburðarsíðum þeirra.
Vefkaffið fer fram á Teams mánudaginn 5. október kl. 11.30. Skráning fer fram hér.