Bjarndís Fjóla Jónsdóttir, verkefnastjóri í kennslu- og upplýsingatækni hjá Garðabæ, ætlar að segja frá reynslu þeirra af gerð áhættumata kennsluhugbúnaðar og af þjónustu Öruggara Náms, til að styðja við ábyrga notkun kennsluhugbúnaðar í skólum sveitarfélagsins.

Nýlega byrjaði Garðabær að nýta þjónustu frá Öruggara Námi, en þar geta sveitarfélögin nálgast uppfærð áhættumöt kennsluhugbúnaðar, sótt um ný, fundið leiðbeiningar og deilt með sér reynslu og gagnlegum upplýsingum.
"Árið 2018 hófu Hafnarfjörður og Garðabær samstarf um áhættumat á kennsluhugbúnaði. Reykjavík bættist fljótlega við og síðar Kópavogur og úr varð samstarf fjögurra sveitarfélaga um að deila þekkingu, samræma vinnubrögð og takast saman á við nýjar áskoranir í stafrænu skólastarfi.
Í Vefkaffinu segi ég frá aðdragandanum, hvernig samstarfið þróaðist og þeirri mikilvægu þekkingu sem varð til á leiðinni. Einnig verður sagt frá því hvernig þessi vinna og reynslan af samstarfinu varð grunnur að áframhaldandi þróun verkefnisins og að Öruggara Námi eins og það lítur út í dag."
Vefkaffi eru stafrænar spjallstofur sem haldnar eru mánaðarlega yfir vetrarmánuðina, þar sem kynnt eru hin ýmsu verkefni tengd stafrænni umbreytingu sveitarfélaganna. Vefkaffið verður tekið upp og birt hér að vefkaffinu loknu.