Stafræn vegferð
Stafræn opinber þjónusta Reykjavíkurborgar verðlaunuð á UT-messunni 2026
11. febrúar 2026
Þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar var veitt Upplýsingatækniverðlaun Ský 2025 fyrir bestu opinberu stafrænu þjónustuna á UT-messunni í Hörpunni föstudaginn 6. febrúar síðastliðinn.

Hin árlega UT-messa Ský var haldin 6. og 7. febrúar í Hörpu. Uppselt var á ráðstefnuna enda ákveðin uppskeruhátíð á sviði upplýsingatæknimála hér á landi.
Verðlaunin UT-Stafræna opinbera þjónustan hefur Ský veitt árlega frá árinu 2010 og ætluð lausnum á opinbera markaðnum sem skara fram úr og einfalda daglegt líf fólks.
Í umsögn frá Ský kemur fram að "Þjónustu- og nýsköpunarsvið er hjartað í stafrænni umbreytingu Reykjavíkurborgar þar sem þjónustuhönnun, notendamiðuð þróun og gagnadrifin ákvarðanataka eru höfð að leiðarljósi."
Óskum við Reykjavíkurborg innilega til hamingju með verðlaunin.
