Úthlutun námsleyfa vegna skólaársins 2026-2027
18. desember 2025
Úthlutun námsleyfa vegna skólaársins 2026-2027 er lokið. Alls bárust Námsleyfasjóði 169 fullgildar umsóknir. Fjármagn til úthlutunar leyfði að veitt yrðu 51 námsleyfi. Aðeins var hægt að verða við um 30% þeirra beiðna sem fyrir lágu og því ljóst að mörgum fullgildum umsóknum varð að hafna.

Tilkynning um niðurstöðu stjórnar Námsleyfasjóðs hefur verið send öllum umsækjendum rafrænt í gegnum „mínar síður“ á www.island.is.
Nöfn námsleyfishafa hafa verið birt á vefsíðu Námsleyfasjóðs , sbr. 15. gr. reglna um Námsleyfasjóð.