Námsleyfasjóður kennara og stjórnenda grunnskóla starfar á grundvelli bráðabirgðaákvæðis II við lög um grunnskóla nr. 91/2008. Hlutverk Námsleyfasjóðs er að greiða laun félagsmanna í Félagi grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélagi Íslands (SÍ) sem hlotið hafa námsleyfi, allt að einu ári.

Stjórn Námsleyfasjóðs er skipuð tveimur aðilum frá Kennarasambandi Íslands og þremur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Frá KÍ eru: Hreiðar Oddsson og Kristjana Hrafnsdóttir og frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga eru: Lúðvík Hjalti Jónsson, Hólmfríður G. Guðjónsdóttir og Anna Ingadóttir. Formaður stjórnar er Lúðvík Hjalti Jónsson. Stjórn Námsleyfasjóðs fer einnig með málefni Endurmenntunarsjóðs grunnskóla.

Starfsmenn sjóðsins eru Anna Ingadóttir og Ragnheiður Snorradóttir.

Nánari upplýsingar veita