Ráðhúsfræðslan
Upplýsingaréttur kjörinna fulltrúa
3. nóvember 2026
Ráðhúsfræðslan þann 10. nóvember kl. 12:00 mun fjalla um upplýsingarétt kjörinna fulltrúa. Nauðsynlegt er að skrá sig á fræðsluna.
Í fræðslunni verður farið yfir upplýsingarétt kjörinna fulltrúa og samspil upplýsingarréttar sveitarstjórnarlaga við upplýsingalög og lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Fræðslan hentar bæði nýjum og reynslumiklum kjörnum fulltrúum.
Fyrirlesari er Bryndís Gunnlaugsdóttir, lögfræðingur á þjónustusviði Sambandsins.
Tengill á Zoom verður sendur til skráðra þátttakenda að morgni fræðsludags.