Fara í aðalefni

Sambandið

Sunna Hlín vara­formað­ur stjórn­ar Sam­bands­ins

9. október 2026

Ný stjórn Sambandsins nýtti tækifærið á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga og fundaði í Vör við Viðeyjarsund. Skipti stjórn með sér verkum og fjallaði um dagatal stjórnar starfsárið 2026-2027.

Stjórn að loknum fyrsta fundi.

Sunna Hlín Jóhannesdóttir var kjörinn varaformaður stjórnar Sambandsins. Sunna Hlín er oddviti Framsóknarflokksins á Akureyri og varaformaður bæjarráðs með meistaragráðu í samskipta, auglýsinga- og markaðsfræðum. Hún starfaði sem kennari við viðskipta- og hagfræðideild VMA, og hefur áður starfað við blaðamennsku, almannatengsl og stundakennslu við Háskólann á Akureyri.

Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir boðaði forföll og sat Bjarni Guðjónsson fundinn í hennar fjarveru.