Fara í aðalefni

Kjaramál

Sam­eig­in­leg yf­ir­lýs­ing vegna kjara­samn­inga á al­menn­um vinnu­mark­aði

9. október 2026

Ríkisstjórnin, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa undirritað sameiginlega yfirlýsingu vegna kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.

Í mars 2024 gerðu Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög Alþýðusambands Íslands kjarasamning til fjögurra ára fyrir almenna markaðinn sem nefndur var Stöðugleikasamningurinn.

Hinn 20. maí sl. var tilkynnt um þríhliða samtal ríkisins, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um verðlagsþróun í samhengi við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Aðilar að þríhliða samtalinu auk Sambands íslenskra sveitarfélaga eru sammála um mikilvægi meginmarkmiðs Stöðugleikasamningsins að skapa skilyrði fyrir minni verðbólgu og lækkun vaxta. 

Til þess að ná markmiðum samningsins og tryggja að hann skili árangri munu aðilarnir því leggjast sameiginlega á árarnar út gildistíma hans til þess að ná niður verðbólgu og skapa aðstæður fyrir lækkun vaxta með eftirfarandi aðgerðum:

  1. Ríkið mun ekki hækka krónutölugjöld sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs á árinu 2027 um meira en 2,5%, að kílómetragjaldi undanskildu vegna kerfisbreytingar á gjaldtöku ökutækja.
  2. Gjaldskrár ríkisstofnana sem bein áhrif hafa á vísitölu neysluverðs munu ekki hækka umfram 2,5% á árinu 2027. Ríkið mun jafnframt beina þeim tilmælum til fyrirtækja í sinni eigu að gæta að verðstöðugleika með því að hækka ekki gjaldskrár opinberrar þjónustu sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs umfram 2,5% á árinu 2027.
  3. Í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga 25. september sl. hvetur sambandið sveitarfélög til að hækka ekki almennar gjaldskrár sínar um meira en 2,5% á árinu 2027. Sérstaklega verði horft til gjaldskráa sem eru undir beinni stjórn sveitarstjórna. Sveitarfélög munu jafnframt hvetja fyrirtæki í sinni eigu til að leita allra leiða til að hækka ekki gjaldskrár opinberrar þjónustu sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs umfram 2,5% á árinu 2027.
  4. Samtök atvinnulífsins hvetja aðildarfyrirtæki sín að leita allra leiða til að halda aftur af verðhækkunum og gæta í því efni að markmiðum Stöðugleikasamningsins.
  5. Síðastliðið sumar var að störfum vinnuhópur um styrkingu launatölfræði sem skilaði niðurstöðum sínum til Þjóðhagsráðs 3. september sl. Aðilar að samkomulaginu eru sammála um að ráðast skuli í heildarsöfnun launaupplýsinga frá launagreiðendum. Stjórnvöld munu hefja undirbúning að heildarsöfnun launaupplýsinga á íslenskum vinnumarkaði strax á árinu 2026 og tryggja fjármögnun verkefnisins frá og með 2027. Með þessu mun skapast mun heildstæðari upplýsingagrunnur um íslenskan vinnumarkað en með núverandi fyrirkomulagi.
  6. Á fundi Þjóðhagsráðs 3. september sl. voru jafnframt kynntir valkostir til að draga úr sjálfvirkum verðbreytingum. Aðilar að samkomulaginu munu ráðast í aðgerðir til að draga úr vægi sjálfvirkra verðbreytinga, m.a. á grundvelli þeirra valkosta sem þar voru kynntir.

Yfirlýsing ríkisstjórnar, Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga