Fjármálaráðstefna
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga hófst í Vör í morgun
8. október 2026
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga hófst í morgun í Vör við Viðeyjarsund. Þar koma fulltrúar sveitarfélaga víðs vegar að af landinu saman til að ræða stöðu og framtíðarhorfur sveitarfélaga, fjármál, efnahagsmál, innviði og þau verkefni sem fram undan eru í íslensku sveitarstjórnarstigi. Dagskrá ráðstefnunnar stendur yfir í dag og á morgun.

Almar Guðmundsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, setti ráðstefnuna og fjallaði í ávarpi sínu um mikilvægi þess að það ríki traust og gagnkvæmur skilningur í samskiptum ríkis og sveitarfélaga. Vísaði Almar jafnframt til þeirrar áherslu sem fram kom í ályktun landsþings Sambandsins á Akureyri í lok september, þar sem sveitarfélög landsins kölluðu eftir auknu samráði, skýrari verkaskiptingu og öflugra samstarfi ríkis og sveitarfélaga um lausn þeirra stóru verkefna sem blasa við í þjónustu við íbúa og uppbyggingu samfélagsins.
Þá sagði hann sveitarfélögin ætla að taka meira pláss í menntamálum en ríflega helmingur skatttekna sveitarfélaga fer í málaflokkinn, sem er gríðarlega mikilvægur. Hann snýst um framtíð barna og sveitarfélögin eiga að spila stórt hlutverk þar.
Áhugaverðar pallborðsumræður
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, og Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, fluttu einnig erindi á ráðstefnunni. Að þeim loknum fóru fram pallborðsumræður undir stjórn Boga Ágústssonar. Þá er fjölbreytt dagskrá erinda og umræðna á dagskrá yfir daginn þar sem fjallað er um fjármál sveitarfélaga, efnahagsþróun, kjaramál, menntamál og uppbyggingu innviða.
Ráðstefnunni lýkur á morgun, föstudag, með málstofu þar sem sjónum verður beint að helstu áskorunum og tækifærum sveitarfélaga á komandi árum. Beint streymi er ráðstefnunni og hægt verður að nálgast upptöku eftir helgi.