Kjaramál
Samningsumboð Reykjavíkurborgar færist til Sambandsins
7. október 2026
Borgarstjórn hefur samþykkt að fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga samningsumboð borgarinnar í kjaramálum. Með ákvörðuninni verður samningsumboð í kjaraviðræðum fyrir allt starfsfólk sveitarfélaga landsins undir hatti Sambandsins og markar það tímamót fyrir kjaramál sveitarfélaga á Íslandi.

Með þessari breytingu koma sveitarfélög landsins fram sem sterkari heild í kjaraviðræðum. Sameiginlegt samningsumboð styrkir stöðu sveitarfélaganna, eykur samræmi í kjaramálum og skapar enn betri forsendur til að gæta hagsmuna þeirra gagnvart viðsemjendum.
Á undanförnum árum hefur samninganefnd Sambandsins byggt upp mikla þekkingu og reynslu á sviði kjaramála. Með samningsumboði Reykjavíkurborgar verður til öflug samninganefnd þar sem sameinast sérfræðiþekking og víðtæk reynsla af vinnumarkaðsmálum sveitarfélaga.
„Það er mikilvægt fyrir sveitarfélögin að koma fram sem ein sterk heild í kjaramálum. Með sameiginlegri samninganefnd Reykjavíkur og Sambandsins verður til sterk eining sem býr yfir mikilli þekkingu, reynslu og yfirsýn á kjaramálum sveitarfélaga, og mun styrkja faglega vinnu við kjarasamninga á komandi árum,“ segir Almar Guðmundsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
„Hagsmunir Reykjavíkurborgar liggja í þéttu og öflugu samstarfi á vettvangi kjaramála hins opinbera. Við trúum því að breytingin muni leiða af sér öflugri samninga og faglegri vinnu. Við berum fullt traust til Sambandsins í þessum mikilvægu verkefnum og hlökkum til áframhaldandi samstarfs,” segir Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur.