Umhverfis Ísland
Styrkir til sveitarfélaga vegna opinberra innkaupa sem styðja við hringrásarhagkerfið
12. maí 2026
Sveitarfélög á Norðurlöndum geta sótt um styrki að andvirði allt að 14 milljóna íslenskra króna til að prófa hringrásarlausnir. Stutt er við verkefni sem ætlað er að einfalda ferla og aðferðir sem styðja við hringrásarhagkerfið opinberum innkaupum. Lausnirnar þurfa að vera nógu nýstárlegar til að vera ekki aðgengilegar á viðráðanlegu verði og aðgerðir geta ekki verið hluti af daglegum rekstri.

Sérstaklega verður horft til verkefna sem:
- Stuðla að innkaupum sem styðja við endurnotkun og endurnýjun upplýsinga- og samskiptatæknibúnaðar.
- Stuðla að hagræðingu í flutningum og sendingum svo hægt sé að auka hringrás í samgöngum, t.d. með lengingu líftíma ökutækja eða bættri flotastjórnun.
- Stuðla að bættri innkaupahegðun sem styður við hringrásarhagkerfið á einhverjum eftirfarandi sviða: gagnasöfnun sem varpar ljósi á raunverulega kauphegðun, hönnun á aðferðum sem styðja innkaupastjóra við hringrásarstyðjandi innkaup eða innleiðing á aðgerðum sem styðja við hringrásarhegðun.
Næsti umsóknarfrestur er 1. júní 2026 og er frekari upplýsingar að finna á vefsíðu sjóðsins.