Fara í aðalefni

Stafræn vegferð

Kynn­ing­ar­fund­ir og vinnu­stof­ur um staf­rænt sam­starf sveit­ar­fé­laga

26. júní 2026

Á tímabilinu september 2025 til maí 2026 fór stafrænt teymi Sambands íslenskra sveitarfélaga í alla landshluta og héldu kynningarfundi um stafrænt samstarf sveitarfélaga, stöðu verkefna og horfur í málaflokknum.

Heimsókn á Norðurland eystra
Heimsókn á Norðurland eystra

Á kynningarfundunum var farið yfir skipulag samstarfsins, sameiginlega stefnumörkun og helstu verkefni. Sérstök áhersla var lögð á stöðu stafrænnar umbreytingar, samspil við stafræna stefnu hins opinbera og þau tækifæri sem felast í aukinni samræmingu, miðlægum lausnum og betri gagnaskiptum.

Samhliða kynningarfundunum voru haldnar alls 19 vinnustofur. Unnið með þrjár megin stoðir stafrænnar umbreytingar:

  • rekstur og innra starfsumhverfi sveitarfélaga,
  • stafræna þjónustu við íbúa,
  • samskipti og samræmingu við ríki og aðra aðila.

Markmið vinnustofanna var að greina stöðu sveitarfélaga, forgangsraða verkefnum og móta skýrar aðgerðir sem hvert sveitarfélag getur unnið áfram að. Vinnan byggir á því að sameiginleg umbreyting skili aukinni skilvirkni, betri þjónustu og sterkari innviðum til framtíðar.

Áherslur til næstu ára snúa að áframhaldandi uppbyggingu stafræns samstarfs, aukinni samræmingu á verklagi og þjónustu, og styrkingu tæknilegra innviða sveitarfélaga. Jafnframt er lögð áhersla á að efla þekkingu, bæta aðgengi að gögnum og styðja sveitarfélög við að innleiða stafrænar lausnir með ábyrgum og samræmdum hætti.

Sambandið vill færa sveitarfélögum sínar bestu þakkir fyrir góða þátttöku, opið samtal og mikilvægt framlag á kynningarfundum og vinnustofum.

Sveitarfélög sem hafa áhuga á vinnustofum á haustmánuðum eru hvött til að hafa samband við stafrænt teymi Sambandsins.