Sambandið
Yfirlýsing frá Sambandinu vegna samkomulags um börn með fjölþættan vanda
26. júní 2026
Vegna svara mennta- og barnamálaráðuneytisins á gagnrýni Sambandsins varðandi vinnubrögð ráðuneytisins við nýja reglugerð um börn með fjölþættar stuðningsþarfir vill Sambandið koma eftirfarandi á framfæri:
Samband íslenskra sveitarfélaga hafnar þeirri fullyrðingu ráðuneytisins að ný reglugerð um börn með fjölþættar stuðningsþarfir sé í samræmi við samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025.
Með reglugerðinni er skilgreining hópsins sem um ræðir einhliða þrengd af ráðuneytinu. Fjöldi barna sem áður voru metin af sérfræðingum með fjölþættar stuðningsþarfir falla nú utan skilgreiningarinnar nú þegar ríkið hefur tekið yfir ábyrgðina.
Þetta er efnisleg stefnubreyting sem gengur gegn samkomulaginu og felur í sér að hópur barna með flóknustu þjónustuþarfirnar stendur eftir án viðeigandi úrræða. Sambandið krefst þess að reglugerðin verði endurskoðuð þannig að hún taki mið af raunverulegum þörfum barna en ekki af því hvort stuðningur við þau muni að endingu draga úr þjónustuþörf barnanna. Það er á þeim grunni sem ríkið vill aðgreina hóp barna með fjölþættar stuðningsþarfir og er Sambandið því mótfallið.
Sambandið ítrekar að samkomulagið snérist um breytta ábyrgðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga til framtíðar en ekki um það að ríkið myndi leggja málaflokknum til tiltekið fjármagn. Ríkið tók að sér ábyrgð á framkvæmd og fjármögnun þjónustu við þennan viðkvæma hóp barna. Það er óásættanlegt að ríkið endurskilgreini hópinn einhliða með öðrum hætti en samið var um, þar sem það fjármagn sem ríkið ætlaði til málaflokksins er ekki fullnægjandi.