Fara í aðalefni

Stafræn vegferð

Stefna um op­in­bera þjón­ustu gef­in út í fyrsta sinn

12. október 2026

Ríki og sveitarfélög hafa gefið út sameiginlega stefnu um opinbera þjónustu. Þetta er í fyrsta sinn sem heildstæð stefna um opinbera þjónustu er sett hér á landi.

Markmið stefnunnar er að samræma þjónustu hins opinbera og gera hana betri, aðgengilegri og hagkvæmari.

Stefnan tekur mið af því að þarfir fólks eru ólíkar og að samfélagið stendur frammi fyrir hröðum breytingum, meðal annars vegna breyttrar aldurssamsetningar, aukins fjölbreytileika og örrar tækniþróunar.

Styður við traust, verðmætasköpun og bætt lífskjör

Framtíðarsýn stefnunnar er að á Íslandi sé veitt framúrskarandi opinber þjónusta. Þjónustan verði öllum aðgengileg á notendavænan og skilvirkan hátt, auk þess að vera samræmd, gagnsæ og hagkvæm. Þannig styðji hún við traust, verðmætasköpun og bætt lífskjör.

Stefnan byggist á þremur markmiðum og undir hverju markmiði eru nokkrar áherslur:

Áhersla er meðal annars lögð á notendamiðaða og samþætta þjónustu í gegnum Ísland.is, bætta þjónustu í persónu, aukna hagnýtingu gagna og tækni, einföldun regluverks, nýsköpun og aukna samvinnu milli ríkis og sveitarfélaga. Markmiðið er að almenningur og atvinnulíf upplifi opinbera þjónustu sem eina heild, óháð því hvaða stofnun eða stjórnsýslustig veitir hana.