Kjaramál

Skrif­að und­ir kjara­samn­ing við sjúkra­liða

12. júní 2025

Í gær, miðvikudaginn 11. júní, var skrifað undir kjarasamning við Sjúkraliðafélag Íslands. Nýr samningur gerir ráð fyrir innleiðingu starfsmats með bráðabirgðaröðun starfa sjúkraliða.

Kistufell við Grundarfjörð
Kistufell við Grundarfjörð

Kynning á helstu efnisatriðum og breytingum kjarasamnings hefur verið send til sveitarfélaga og bráðabirgðaröðun verður send á næstu dögum þegar hún hefur verið afgreidd af Verkefnastofu starfsmats.

Kjarasamningur fer nú til atkvæðagreiðslu sem lýkur á hádegi þann 8. júlí n.k. Verði kjarasamningurinn samþykktur gildir hann frá 1. janúar 2025 til 31. mars 2028.

Síðasti kjarasamningurinn í þessari lotu

Þess má geta að kjarasamningur við Sjúkraliðafélag Íslands er síðasti kjarasamningurinn sem gerður er í þessari samningalotu.