Fara í aðalefni

Alþjóðamál

Opn­að fyr­ir um­sókn­ir í New Europe­an Bauhaus – upp­lýs­inga­fund­ur og tengsla­ráð­stefna

20. apríl 2026

Þau sem eru áhugasöm um sjálfbæra þróun, félagslega nýsköpun og framtíð byggðs umhverfis ættu ekki að láta þessa viðburði fram hjá sér fara. New European Bauhaus er hluti af Horizon Europe rannsókna- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins og hefst ný umsóknalota vegna hennar þann 5. maí. Í tengslum við hana verður haldinn upplýsingafundur og tengslaráðstefna í byrjun júní.

  • Upplýsingafundur þann 4. júní 2025 kl. 07:30–11:00
  • Tengslaráðstefna þann 5. júní 2025 kl. 11:30–15:00

Upplýsingafundurinn og tengslaráðstefnan eru kjörin tækifæri fyrir sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, fræðasamfélag og félagasamtök sem hafa áhuga á þátttöku í alþjóðlegu samstarfi um sjálfbæra og samfélagslega nýsköpun. Verkefni sem styrkt eru í þessari áætlun þurfa að vera í samstarfi við fleiri Evrópulönd og hér eru nokkur dæmi um verkefni sem styrkt verða:

  • Húsnæðismiðaðar nálganir í anda New European Bauhaus til að takast á við heimilisleysi
  • Nýstárlegar nálganir við rýmis- og skipulagsgerð hverfa
  • Rannsóknir á upplifun íbúa af nærumhverfi með tilliti til heilsu og vellíðunar
  • Sjálfbærar, inngildandi og fagurfræðilegar lausnir út frá hitastigi í byggingum
  • Sjálfbærar lausnir vegna viðhalds á eldri byggingum
  • Nýtingu lóðrétts rýmis á sjálfbæran og skapandi hátt
  • Samhæfðar samfélagslegar innviða- og þjónustulausnir í hverfum til að takast á við heimilisleysi
  • Endurnýting auðra, úreltra eða vannýttra rýma
  • Innleiðing hringrásarhagkerfislíkana í byggingargeiranum

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Rannís og á New European Bauhaus vefsíðunni.