Fara í aðalefni

Landbúnaður

Sam­tök land­bún­að­ar­sveit­ar­fé­laga stofn­uð

2. nóvember 2026

Samtök landbúnaðarsveitarfélaga voru formlega stofnuð á stofnfundi sem haldinn var í Reykjavík 7. október.

Jón Björn Hákonarson, formaður Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga

Samtökunum er ætlað að sameina krafta sveitarfélaga sem eiga beina hagsmuni af landbúnaði, matvælaframleiðslu, landnýtingu og byggðaþróun og styrkja rödd þeirra í umræðu og stefnumótun á landsvísu.

Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar, var kjörinn formaður samtakanna. Auk hans voru fjögur kjörin í aðalstjórn til tveggja ára:

  • Anton Kári Halldórsson, Rangárþingi eystra
  • Unnur Brá Konráðsdóttir, Borgarbyggð
  • Högni Elfar Gylfason, Skagafirði
  • Dagmar Ýr Stefánsdóttir, Múlaþingi

Í varastjórn voru kjörin Hulda Kristjánsdóttir, Flóahreppi, Nína Axelsdóttir, Húnaþingi vestra, og Snæþór Haukur Sveinbjörnsson, Þingeyjarsveit.

Áhyggjur af áhrifum breytinga á tollflokkun osts

Stofnfundurinn samþykkti jafnframt samhljóða ályktun þar sem lýst er yfir miklum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á tollflokkun osts með viðbættri jurtaolíu. Samtökin benda á að málið snúist ekki aðeins um tollflokkun einstakrar vöru heldur geti breytingarnar haft víðtæk áhrif á samkeppnisstöðu íslenskrar mjólkurframleiðslu og þá virðiskeðju sem henni tengist, meðal annars störf bænda, afurðavinnslu, flutninga og þjónustustarfsemi víða um land.  

Í ályktuninni er sérstaklega bent á að verulegur hluti íslenskrar mjólkurframleiðslu fari til ostagerðar og því geti áhrif breytinganna náð langt út fyrir einstök bú og til fjölmargra sveitarfélaga þar sem landbúnaður er ein af undirstöðum atvinnulífs. Þá er bent á mikilvægi þeirra fjárfestinga sem bændur hafa ráðist í á undanförnum árum til að efla samkeppnishæfni framleiðslunnar.

Samtökin leggja jafnframt áherslu á mikilvægi öflugrar innlendrar matvælaframleiðslu fyrir fæðuöryggi þjóðarinnar. Á tímum aukinnar óvissu í alþjóðamálum sé mikilvægt að ákvarðanir stjórnvalda styðji við innlenda framleiðslugetu og sterka innviði til matvælaframleiðslu.

Í lok ályktunarinnar skorar stofnfundurinn á Alþingi og ríkisstjórn að falla frá fyrirhuguðum breytingum og tryggja að við mat á málinu verði tekið fullt tillit til áhrifa á fæðuöryggi, verðmætasköpun í landbúnaði og byggðafestu í landinu.